Drengjaflokkur Njarðvíkur enn ósigraður

Leikurinn var nokkuð jafn framan af og var jöfn eftir 3. leikhluta, 62-62, en Rúnar Ingi Erlingsson og Jóhann Árni voru drjúgir á endasprettinum og tryggðu sigurinn.
Eins og áður sagði var Jóhann Árni atkvæðamestur með 40 stig, Kristján Rúnar Sigurðsson gerði 14 stig, Daníel Guðni Guðmundsson 12, Rúnar Ingi Erlingsson 6, Hjörtur Hrafn Einarsson 5, Ragnar Ólafsson 3, Elías Kristjánsson 2.