Drengjaflokkur Keflavíkur enduði í 2. sæti í A-riðli
Drengjaflokkur Keflavíkur tryggði sér 2. sætið í A-riðli í körfuknattleik þegar liðið sigraði Fsu í Toyotahöllinni í gærkvöldi, 84-72. Leikurinn var hreinn úrslitaleikur um annað sætið og þurfti Keflavík að vinna leikin með 11 stigum eða meira til að tryggja sér sætið.
Leikurinn byrjaði að krafti þar sem ekkert var gefið eftir. Keflavík náði snemma góðu forskoti þar sem allir leikmenn voru að spila hörku varnarleik og komust FSu drengirnir ekkert áleiðis. Sigurinn var þó aldrei öruggur og var staðan í hálfleik 41-32.
Seinni hálfleikurinn byrjaði eins og sá fyrri, með grimmum varnarleik og öguðum sóknarleik þar sem Keflvíkingar náðu snemma 20 stiga forystu sem þeir héldu nánast fram á seinustu sekúndu. FSu náði aðeins að klóra í bakkann, án þess að ógna heimamönnum.
Strákarnir í Keflavík mæta liðinu sem hafnar í 3. sæti B-riðils í 8 liða úrslitum og eins og staðan er núna eru Haukar líklegastir.
Stigaskor Keflvíkinga:
Sigurður Vignir 19 stig
Kristján 15 stig
Sævar 14 stig
Andri Þór 10 stig
Aron Freyr 6 stig
Atli Már 6 stig
Andri Dan 6 stig
Hafliði 5 stig
Gísli Steinar 3 stig
Mynd: Drengjaflokkur Keflavíkur bikarmeistari árið 2007.