Dregið á morgun í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar
Dregið verður í 32-liða úrslitum í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar kl. 14 á morgun. Drátturinn mun fara fram í sal ÍSÍ í Laugardal en alls eru 33 lið í pottinum í karlaflokki. Það þýðir að einn leikur verður í forkeppni að 32-liða úrslitum.
Einnig verður dregið í 16-liða úrslita í kvennaflokki, en þar munu fjögur lið sitja hjá í 16-liða úrslitum þar sem 12 lið skráðu sig til keppni.
VF-mynd/ úr safni