Dramatík í Keflavík
Það var heldur betur dramatískur leikur á Nettóvellinum í Keflavík í gærkvöldi þegar Keflavíkurstúlkur tóku á móti FH í næstsíðustu umferð A-riðils 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Eftir hræðilega byrjun þar sem Keflavík lenti þremur mörkum undir á fyrsta stundarfjórðungi leiksins, komu Keflavíkurstúlkur til baka. Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði tvö mörk, það fyrra á 35. mínútu og það síðara á 48. mínútu. Marina Nesic jafnaði síðan leikinn fyrir Keflavík með marki á 80. mínútu. FH-stúlkur gerðu út um leikinn með marki úr vítaspyrnu á 90. mínútu.
Tvö efstu lið riðilsins fara í úrslitakeppnina og eru FH-ingar öruggir með að komast þangað. Keflavík og HK/Víkingur berjast hins vegar um hitt sætið en fyrir síðustu umferðina er HK/Víkingur með 25 stig og á eftir að leika gegn FH en Keflavík er með 22 stig og eiga leik við Sindra. Þar verða Keflavíkurstúlkur að sigra og treysta á að FH vinni HK/Víking en Keflavíkurstúlkur eru með 5 mörk í plús á HK/Víking.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson