Dómarar leggja fram kæru á hendur Agnari
Þeir Sigmundur Már Herbertsson og Davíð Hreiðarsson, körfuknattleiksdómarar, hafa lagt fram kærur á hendur Agnari Mar Gunnarssyni, aðstoðarþjálfara Keflavíkurkvenna, til aganefndar Körfuknattleikssambands Íslands fyrir að gefa Helenu Sverrisdóttur olnbogaskot í gærkvöldi. Atvikið átti sér stað eftir að leik Hauka og Keflavíkur lauk eins og Víkurfréttir hafa þegar greint frá í dag.
Á sjónvarpsupptöku sem sýnd var í tíufréttum RÚV í gærkvöldi og aftur í kvöldfréttum í kvöld er atvikið sýnt en þar sést einnig að annar dómara leiksins er staddur mjög nálægt bæði Agnari og Helenu þegar atvikið á sér stað en grípur ekki til aðgerða.
Agnar hefur beðist afsökunar á framferði sínu í þessu máli og Körfuknattleiksdeild Hauka gaf það út í dag að þeir myndu ekki kæra atvikið. Málið mun fara fyrir aganefnd KKÍ á næstu dögum og þá kemur í ljós hver refsing Agnars verður.
VF-mynd/ [email protected] – Davíð og Sigmundur ræða saman í leiknum í gær.