Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Diouck framlengir við Njarðvík
Oumar Diouck í leik gegn Grindavík í sumar. VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 2. október 2023 kl. 20:49

Diouck framlengir við Njarðvík

Oumar Diouck hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Njarðvíkur til ársins 2026 en Diouck hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Njarðvíkur síðustu tvö tímabil og var m.a. fyrirliði í nokkrum leikjum.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Njarðvíkur og þar er enn fremur sagt að Oumar, sem er belgískur sóknarmaður af senegölskum ættum, hafi komið sem stormsveipur inn í Njarðvíkurliðið fyrir tímabilið 2022 og átt stóran þátt í að koma liðinu upp í Lengjudeildina, sem og að hjálpa liðinu að halda sæti sínu þar í ár.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Upprunalega kom Oumar til Íslands árið 2020 og lék með KF í tvö tímabil áður en hann kom til Njarðvíkur.

Í 107 leikjum á vegum KSÍ hefur Oumar skorað 69 mörk á Íslandi en 39 þeirra hafa komið í 62 leikjum fyrir Njarðvík.