Darrel og Pálína best hjá Keflavík
Lokahóf Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur 2013 var haldið á föstudaginn síðastliðin og fóru herlegheitin fram í Toyota höllinni. Valdir voru bestu leikmenn tímabilsins hjá Keflavík. Darrel Lewis var valinn besti leikmaðurinn hjá karlaliði Keflavíkur og Pálína Gunnlaugsdóttir var besti leikmaður kvennaliðsins.
Besti leikmaður karlaliðs:
Darrel Lewis
Besti varnarmaður karlaliðs:
Darrel Lewis
Efnilegast leikmaður karlaliðs:
Ragnar Gerald Albertsson
Besti leikmaður kvennaliðs:
Pálína María Gunnlaugsdóttir
Besti varnarmaður kvennaliðs:
Pálína María Gunnlaugsdóttir
Efnilegasti leikmaður kvennaliðs:
Ingunn Embla Kristínardóttir
Lið ársins:
Darrell Lewis
Pálína María Gunnlaugsdóttir
Birna Valgarðsdóttir
Sara Rún Hinriksdóttir
Ingunn Embla Kristínardóttir
Grilluð lambalæri voru á boðstólnum fyrir gesti, en það voru grillmeistararnir Ólafur Ásmundsson og Guðmundur Bjarni Kristinsson sem stýrðu matseldinni eins og sannir höfðingjar.
Sigurður Valgeirsson hélt erindi og talaði um árangur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur í gegnum tíðina. Hann færði klúbbnum einnig upprunalegu myndina af Keflavíkurhraðlestinni sem að Stefán Jónsson teiknari gerði á sínum tíma. Hermann Helgason, formaður KKD Keflavíkur, tók við af Sigurði og fræddi gesti um tölfræðilegar staðreyndir af titlum KKD Keflavíkur á þessu tímabili og á árum áður. Hann nefndi þar m.a. að ef 60 minutes ætti að fjalla um eitthvað rannsóknarefni, þá væri það árangur kvennakörfunnar í Keflavík.
Jón Gauti Dagbjartsson, fallbyssukjaftur úr Grindavík, mætti á svæðið og jós svívirðingum yfir veislugesti að hætti hússins. Það mæddi mikið á honum að kvarta og kveina yfir þeim Keflvíkingum sem sendir hafa verið yfir Alpana (Þorbjörn) til að spila og þjálfa fyrir Grindavík. Uppistand hans vakti mikla kátínu veislugesta og fékk hann standandi lófatak þegar yfir lauk.
Happdrættið lukkaðist vel og voru fjöldinn allur af glæsilegum vinningum sem runnu út til gesta sem fjárfest höfðu í miðum og dottið í lukkupottinn.
Valdimar Guðmundsson og Björgvin Baldursson, einnig nefndir Eldar, spiluðu fagra tóna fyrir veislugesti eftir verðlaunaafhendinguna. Jessica Jenkins var á svæðinu og afhenti kvennaráð henni blómvönd fyrir að hafa lagt hönd á plóginn með kvennaliðinu í vetur.