Bygg
Bygg

Íþróttir

Danskur markmaður með Keflavík
Mánudagur 27. apríl 2009 kl. 08:15

Danskur markmaður með Keflavík


Úrvalsdeildarlið Keflavíkur í knattspyrnu karla hefur ákveðið að semja við danska markmanninn Lasse Jörgensen um að leika með liðinu á komandi keppnistíð.  Hann kemur til landsins í dag en hann dvaldi hér á dögunum við æfingar með liðinu. Þá fór hann með liðinu í æfingaferð til Portúgals og þótti standa sig vel.
Lasse er 24 ára gamall og kemur frá danska liðinu Silkeborg IF.  Hann hefur verið varamarkmaður liðsins undanfarin ár og leikið nokkra leiki með aðalliði félagsins.
Í dag er einnig von á slóvenskum varnarmanni sem æfa mun með liðinu í vikutíma.

Nú styttist í að Íslandsmótið hefjist en Keflvíkingar eiga sinn fyrsta leik þann 11. maí þegar þeir taka á móti FH á Sparisjóðsvellinum.
---

Mynd: keflavik.is/Jón Örvar - Lasse Jörgensen á æfingu með Keflavík á dögunum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn