Fimmtudagur 5. september 2013 kl. 14:23
Daníel lék er Íslendingar sigruðu Skota
Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson lék með U19 liði Íslands í knattspyrnu sem bar sigurorð af Skotum, 3-0 í Skotlandi í dag. Daníel sem hefur verið fastamaður í liði Grindvíkinga í 1. deild lék sem vinstri bakvörður í leiknum, en Grindvíkingurinn er 18 ára gamall.