HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Íþróttir

Damon spilar ekki með Keflavík í kvöld
Damon Johnson í viðureign á móti Stjörnunni.
Fimmtudagur 20. nóvember 2014 kl. 14:10

Damon spilar ekki með Keflavík í kvöld

Hefur kannski spilað sinn síðasta leik á árinu.

Það er þó nokkuð laskað Keflavíkurlið sem hélt til Sauðárkróks umhádegisbilið en Jón Norðdal Hafsteinsson aðstoðarþjálfari liðsins staðfesti það við Karfan.is rétt áðan að Damon Johnson komi ekki til með að vera með liðinu í kvöld og jafnvel hefur hann leikið sinn síðasta leik á þessu ári. Damon á við meiðsli í hné að stríða og talið er að jafnvel þurfi að gera aðgerð á lifþófa en samkvæmt Jóni þá kemur það í ljós á morgun.
 
Damon er hins vegar ekki eini sem er á meiðslalistanum því í vikunni datt Arnar Freyr Jónsson illa á hönd og talið að hann hafi jafnvel brákað fingur. Gunnar Einarsson mun síðan hafa þurft að sinna persónulegum málum og er því ekki með í rútunni.
 
„Þrátt fyrir þennan missi hjá okkur förum við á Krókinn til að vinna það er engin spurning. Þetta er náttúrlega slæmt fyrir okkur en við vinnum bara úr því sem við höfum og sjáum svo til,“ sagði Jón Norðdal Hafsteinsson, sem stýrir liðinu í fjarveru Helga Jónasar Guðfinnssonar, í samtali við Karfan.is.

Eins og fyrr var greint frá í vikunni glímir Helgi Jónas við hjartsláttartruflanir og gæti þurft að hætta þjálfun.

Public deli
Public deli