HSS
HSS

Íþróttir

Damon Johnson til KR?
Laugardagur 9. janúar 2010 kl. 13:47

Damon Johnson til KR?

Körfuknattleiksmaðurinn Damon Johnson sem margir telja besta útlenska leikmanninn sem leikið hefur á Íslandi er hugsanlega á leiðinni til KR. Damon hefur lítið leikið undanfarin tvö ár en hann er 33 ára gamall. KR ingar hafa staðfest að þeir séu að skoða útlendingamál og Damon sé einn þeirra sem komi til greina að fá í Vesturbæinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Damon er íslenskur ríkisborgari og hefur leikið nokkra landsleiki með Íslandi. Hann lék síðast árið 2003 með Keflavík en þá vann liðið Íslandsmeistaratitilinn. Damon hefur oft leikið með Keflavík og unnið marga titla með liðinu. Hann fór eftir sigurárið 2003 til Spánar þar sem hann lék í tvö ár hjá tveimur liðum. Hann hefur síðustu árin verið í Bandaríkjunum.

Hér er skemmtileg mynd af Damon þar sem hann gefur ungum körfuboltadömum úr Keflavík eiginhandaráritanir. Fyrir miðri mynd er Helena Brynja Hólm, nú leikmaður með Haukum og við hlið hennar Bryndís Guðmundsdóttir, ein af lykilkonum Keflavíkur í dag.