Þriðjudagur 25. febrúar 2003 kl. 16:49
Damon fer ekki til Grikklands

Nú er orðið ljóst að Damon Johnson fer ekki til Grikklands eins og leit út fyrir á tímabili. Hrannar Hólm, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, sagði í samtali við Víkurfréttir að málið hefði lokast fyrir nokkrum mínútum og nú gætu leikmenn farið að einbeita sér að því að ná góðum árangri og gera atlögu að Íslandsmeistaratitlinum. Hann sagði enn fremur að þetta væru góðar fréttir fyrir leikmenn og stuðningsmenn.Hrannar sagði að Grikkirnir hefðu dregið málið á langinn en stjórn Keflavíkur ætlaði að ganga frá málinu sl. föstudag. „Það voru voðaleg vandræði á þeim og við fengum misvísandi upplýsingar. Þeir vildu svo fara að ná niður verðinu en við vorum ekki tilbúnir í það, enda vorum við ekkert að leitast eftir því að selja hann. Þegar á hólminn var komið vildu gátu þeir ekki greitt þessa ákveðnu upphæð og því datt málið niður“, sagði Hrannar.