Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Craion og Sigurður Gunnar í úrvalsliði
Mynd/KKÍ.
Þriðjudagur 18. mars 2014 kl. 14:32

Craion og Sigurður Gunnar í úrvalsliði

- Verðlaun veitt fyrir seinni hluta Domino's deildar karla

Verðlaun voru veitt í dag fyrir bestu frammistöður í Domino's deild karla á seinni hluta keppnistímabilsins. Að venju voru fimm manna úrvalslið deildarinnar tilkynnt og verðlaun veitt fyrir besta þjálfarann og dugnaðarforkinn. Suðurnesjamenn eiga sína fulltrúa í liðinu en Michael Craion (Keflavík) og Sigurður Gunnar Þorsteinsson (Grindavík) eru í úrvalsliðinu að þessu sinni.

Besti dómari Domino’s deilda karla og kvenna í seinni hlutanum var svo Njarðvíkingurinn Sigmundur Már Herbertsson. KR-ingar voru annars sigursælir og var bakvörðurinn Pavel Ermolinskij kjörinn bestur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Eftirfarandi leikmenn og þjálfarar fengu verðlaun:

Úrvalslið Domino’s deildar karla í seinni hlutanum 2013-2014
Martin Hermannsson · KR
Pavel Ermolinskij · KR
Michael Craion · Keflavík
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · Grindavík

Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Þór Þorlákshöfn

Dugnaðarforkurinn:
Darri Hilmarsson · KR

Besti þjálfarinn:
Finnur Freyr Stefánsson · KR

Besti leikmaður Domino’s deildar karla:
Pavel Ermolinskij · KR