Colin á förum
Markvörðurinn Colin Stewart er á förum frá Grindavík til skoska 1. deildarliðsins Livingstone. Colin hefur staðið sig frábærlega í marki Grindvíkinga í sumar og því mikil blóðtaka fyrir Grindvíkinga.
Sigurður Jónsson, þjálfari Grindvíkinga, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að vinnubrögðin hjá Livingstone séu fáránleg og að hann muni ræða við forráðamenn liðsins.
Stewart er samningsbundinn Grindvíkingum til 1. september og svo gæti farið sagði Sigurður að hann myndi leika með liðinu út ágústmánuð. Líklegt þykir að Helgi Már Helgason taki við af Stewart í markinu þegar hann heldur til Skotlands.
VF-mynd/ [email protected] - Colin í leik gegn Valsmönnum fyrr á leiktíðinni