HSS
HSS

Íþróttir

Coca cola-strákurinn til Keflavíkur
Þriðjudagur 24. janúar 2006 kl. 09:54

Coca cola-strákurinn til Keflavíkur

Buddy Farah, 26 ára ástralsk/líbanskur varnarmaður, kemur til landsins í dag og mun vera við æfingar hjá knattspyrnuliði Keflavíkur fram yfir mánaðarmót. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur

Farah þessi er fæddur og uppalinn í Ástralíu, en ákvað að leika frekar með Líbanon þar sem hann var ekki valinn í ÓL hóp Ástrala árið 2000. Farah lék með liði Nejmeh í Beirút í Líbanon, en hætti þar árið 2004 vegna deilna um greiðslur og var mað liði í Malasíu.

Buddy Farah er ekki aðeins lipur knattspyrnumaður heldur er hann líka fyrirsæta og andlit Coca Cola í Asíu hvort sem það hjálpar honum inni á vellinum eða ekki.

Mynd: Fotbolti.net
Bílakjarninn
Bílakjarninn