Burst í Njarðvík
Það er ekki hægt að segja rífandi spennu hafa ríkt í Ljónagryfjunni í gær þegar Njarðvíkingar tóku á móti Fsu, neðsta liði Iceland Express – deildar karla í körfuknatttleik. FSu hefur tapað öllum sínum leikjum í deildinni í vetur. Lokatölur urðu 99-47 fyrir Njarðvík. Frá upphafi leiks var alveg ljóst í hvað stefndi og fengu allir leikmenn Njarðvíkur að spreyta sig í leiknum. Stigahæstur þeirra var Guðmundur Jónsson með 17 stig.
Spennan í toppbaráttu deildarinnar hefur heldur betur magnast en þar eru nú þrjú lið með jafmörg stig: Stjarnan, Njarðvík og KR .
----
Mynd úr safni.