Burst í Grindavík
Grindavíkurkonur komust á topp Iceland Express deildarinnar í körfuknattleik í gærkvöldi. Liðið burstaði botnlið KR, 100-29, en hefur leikið einum leik meira en Íslandsmeistarar Keflavíkur.
Jerica Watson fór hamförum í leiknum, gerði 27 stig og tók 20 fráköst.
Staðan í hálfleik var 44-14 og náðu KR konur aldrei að setja svip sinn á leikinn. Lilja Oddsdóttir var stigahæst KR kvenna með 7 stig.