Bygg
Bygg

Íþróttir

Búin að bíða síðan ég var átta ára
Miðvikudagur 1. maí 2013 kl. 19:36

Búin að bíða síðan ég var átta ára

Ekkert annað í boði en að bæta sig

„Þegar ég var átta ára þá ákvað pabbi minn að fara með mig og bróður minn á lokakeppni Skólahreystis og mér fannst þetta rosalega sniðugt. Síðan þá hef ég beðið spennt eftir því að vera orðin nógu gömul til þess að keppa fyrir hönd skólans míns,“ segir Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman úr Holtaskóla, en hún er afar spennt fyrir úrslitunum í Skólahreysti sem fram fara á morgun.

Fram að keppni mun Kolbrún hvíla vel en hún á von á því að liðið bæti sig í lokakeppninni. Þið munuð sjá mikla bætingu á lokakeppninni, enda ekkert annað í boði.“ Hún telur svo að hennar skóli muni standa uppi sem sigurvegari þriðja árið í röð. „Holtaskóli mun klárlega vinna keppnina,“ segir hún. Kolbrún sem er 14 ára æfir fimleika en hún mun sjá um armbeygjur fyrir skólann sinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

 

Hver er eftirlætis íþróttamaðurinn þinn?

Eftirlætis íþróttamaðurinn minn er Gabrielle Douglas, hún er núverandi ólympíumeistarinn í fimleikum.

Hvaða tónlist kemur þér í gírinn?
Tónlistin sem var spiluð á undankeppni skólahreystis kom mér sko sannarlega í gírinn, en ætli það séu ekki bara svona stuðlög.

Hvað færðu þér að borða fyrir Skólahreysti?
Fyrir keppnina fæ ég mér egg og beikon og síðan er ég alltaf með vínber og banana í nesti.

Áhugamál þín?
Helstu áhugamál mín eru fimleikar, spila á píanóið, vera með vinum og vandamönnum og svo hef ég líka gaman af því að lesa góðar bækur.

Hvernig tilfinning er það að vera í beinni útsendingu í Sjónvarpinu ?
Tilfinningin er frekar skrítin, það er svolítið stressandi en samt rosalega gaman.