Íþróttir

Brynjar og Ísak í lokahóp U17
Njarðvíkingurinn Brynjar Atli er efnilegur í bæði körfu og fótbolta. VF/mynd Eyþór Sæm.
Mánudagur 25. júlí 2016 kl. 15:08

Brynjar og Ísak í lokahóp U17

Njarðvíkingurinn Brynjar Atli Bragason og Keflvíkingurinn Ísak Óli ólafsson eru í lokahóp U17 liðs karla í fótbolta, sem mun að taka þátt á Norðurlandamótinu 2016 sem fram fer í Finnlandi í ágúst.

Markvörðurinn Brynjar Atli hefur þegar leikið tvo landsleiki í fótboltanum en hann var einnig valinn í landslið Íslands í körfubolta nú í vor. Ísak Óli á að baki þrjá leiki með U17 þar sem hann hefur skorað eitt mark.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024