HSS
HSS

Íþróttir

Brynjar og Hafsteinn til liðs við Keflavík?
Þriðjudagur 22. janúar 2008 kl. 18:35

Brynjar og Hafsteinn til liðs við Keflavík?

Brynjar Örn Guðmundsson og Hafsteinn Ingvar Rúnarsson, sem léku með Reyni Sandgerði síðastliðið sumar, æfa þessa dagana með Keflvíkingum og möguleiki er á að þeir muni hafa félagaskipti á næstunni. Frá þessu er greint á www.fotbolti.net

 

,,Þeir eru að æfa hjá okkur og við munum síðan skoða málin og taka ákvörðun fljótlega," sagði Rúnar V. Arnarson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur við Fótbolta.net.

 

Brynjar Örn og Hafsteinn léku báðir með Keflavík á sínum yngri árum en þeir urðu meðal annars Íslandsmeistarar með 2.flokki félagsins árið 2000.

 

Brynjar er 25 ára gamall miðjumaður en hann hefur leikið með Reyni Sandgerði undanfarin tvö ár. Hann skoraði eitt mark í nítján leikjum í fyrstu deildinni síðastliðið sumar en hann lék ellefu mótsleiki með Keflvíkingum fyrir nokkrum árum.

 

Hafsteinn er 24 ára gamall kantmaður en hann hefur einnig leikið með Reyni undanfarin tvö ár. Hann lék með Njarðvík sumarið 2005 en var áður hjá Keflavík þar sem hann lék sex mótsleiki á sínum tíma. Í sumar skoraði hann fjögur mörk í nítján leikjum með Reynismönnum í fyrstu deildinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn