Brynjar Gestsson tekur við Þrótti Vogum
Brynjar Gestsson hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri flokka Þróttar Vogum og meistaraflokks Þróttar. Brynjar er 42. ára hefur lokið UEFA A prófi í þjálfaramenntun og er íþróttafræðingur. Brynjar hefur mikla reynslu í þjálfun, hefur m.a. þjálfað hjá Fjarðabyggð, Víði, ÍR, Þrótti R, Huginn, auk þess að hafa leikið í meistaraflokki með FH, Haukum og fleiri liðum.
Brynjar sem er uppalinn FH-ingur starfaði síðast hjá Þrótti Reykjavík þar sem hann var yfirþjálfari yngri flokka og aðstoðarþjálfari meistaraflokks Þróttar.
Þróttur Vogum hefur undanfarið leitað leiða til styrkja og efla starfsemi yngri flokka félagsins. Brynjar mun sinna þjálfun og skipulagi yngri flokkanna ásamt þjálfun meistaraflokks karla. Helstu verkefni Brynjars verður að móta starfið til framtíðar. Efla uppeldis og afreksstarfið hjá yngri flokkunum. Uppbygging yngri flokkanna er fjöregg félagsins og ráðning þessi staðfestir að félagið ætlar sér stærri hluti á komandi árum. Samningurinn er til 2019. Þróttur Vogum býður Binna hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins, segir í frétt frá Þrótti Vogum.