Brynjar Atli og Ísak í u17 lið Íslands
Njarðvíkingurinn Brynjar Atli Bragason hefur verið valin í U17 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem tekur þátt í UEFA móti í Eerikkilä í Finnlandi dagana 26.-28. apríl nk. Brynjar Atli er með efnilegustu markvörðum landsins og er á eldra ári í 3. flokki ásamt því að hafa verið varamarkvörður í meistaraflokki í vetur.
Keflvíkingar eiga einnig sinn fulltrúa í liðinu, Ísak Óli Ólafsson verður með í för í Finnlandi.