Bryndís á förum til Belgíu

Bryndís Guðmundsdóttir, einn af lykil leikmönnum Keflavíkur í efstu deild kvenna í körfubolta mun leika í Belgíu næsta vetur. Það verður missir fyrir Keflvíkinga því Bryndís lék vel á síðasta tímabili.
Bryndís hefur gert samning við liðið Royal SPIRO Monecu Charleroi og mun leika með því út næsta tímabil eða til febrúar loka 2010. 
Sambýlismaður hennar, Aron Ómarsson, Íslandsmeistari í mótorkrossi 2009 mun fara með spúsu sinni út til Belgíu og ætlar að æfa þar og keppa í sinni íþrótt.  


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				