Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Íþróttir

Brenton Íþróttamaður UMFN 2006
Laugardagur 26. maí 2007 kl. 12:11

Brenton Íþróttamaður UMFN 2006

Aðalfundur Ungmennafélags Njarðvíkur fór fram í fyrr í vikunni þar sem Brenton Birmingham var útnefndur Íþróttamaður UMFN árið 2006 og þá fékk Gunnar Þorvarðarson gullmerki félagsins fyrir sitt veglega framlag til handa körfuknattleiksdeildinni jafnt innan sem utan vallar.

 

Ólafsbikarinn hlaut Logi Halldórsson en Ólafsbikarinn er starfsbikar og veittur þeim einstaklingi sem hefur starfað vel í þágu félagsins. Bikarinn er til minningar um Ólaf Thordersen en það er fjölskylda hans sem gefur bikarinn. Ólafur Thordersen vann á sínum tíma mikið og gott starf fyrir handknattleiksdeild UMFN sem er ekki lengur starfandi. Ólafur var árið 1985 útnefndur heiðurfélagi númer 1 hjá handknattleiksdeildinni og þá hlaut hann einnig viðurkenningar frá Handknattleikssambandi Íslands. Ólafsbikarinn ber því nafn með rentu því Ólafur vann öll sín störf fyrir félagið í sjálboðavinnu, bæði sem þjálfari og önnur störf er vinna þurfti fyrir félagið.

 

Á fundinum voru einnig útnefndir íþróttamenn hverra deilda fyrir sig hjá UMFN:

 

Körfuknattleiksmaður UMFN 2006 – Brenton Birmingham

Knattspyrnumaður UMFN 2006 – Gestur Gylfason

Sundmaður UMFN 2006 – Erla Dögg Haraldsdóttir

Lyftingamaður UMFN 2006 – Sævar Borgarsson

 

Eftirfarandi aðiliar hlutu silfurmerki UMFN á fundinum:

 

Silfurmerki UMFN

Einar Árni Jóhannsson

Elsie Einarsdóttir

Gunnar Þórarinsson

Haukur Guðmundsson

 

VF-myndir/ Hilmar Bragi Bárðarson – [email protected] - Á efri myndinni er Brenton Birmingham með verðlaunagripina sem Íþróttamaður UMFN 2006 en á neðri myndinni nælir Kristján Pálsson, formaður UMFN, gullmerkið í Gunnar Þorvarðarson.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn