HSS
HSS

Íþróttir

Brenton heitur í stórsigri Njarðvíkinga
Fimmtudagur 24. nóvember 2005 kl. 21:48

Brenton heitur í stórsigri Njarðvíkinga

Topplið Njarðvíkinga sigraði Snæfell með 25 stiga mun í Iceland Express deildinni í kvöld. Lokatölur leiksins voru 103-78 Njarðvíkingum í vil og eru þeir ósigraðir á toppi deildarinnar. Brenton Birmingham átti góðan leik í kvöld og gerði 29 stig fyrir Njarðvík og þar af 21 í fyrri hálfleik.

Njarðvíkingar hófu leikinn af krafti og snemma var staðan 12-3 þeim grænu í vil. Brenton Birmingham var að finna sig fyrir utan þriggja stiga línuna. Snæfell náðu þó að klóra í bakkann og að fyrsta leikhluta loknum var staðan 26-19 Njarðvík í vil.

Annar leikhluti var hrein martröð fyrir Snæfell, Brenton opnaði leikhlutann með þriggja stiga körfu og breytti stöðunni í 29-19. Eftir það réðu Njarðvíkingar lögum og lofum í leiknum. Þegar tæpar 7 mínútur voru til hálfleiks höfðu Njarðvíkingar breytt stöðunni í 44-23 og Igor Beljanski kominn með 3 villur í liði Snæfells.

Ragnar Ragnarsson og Brenton Birmingham gerðu síðan þrjár þriggja stiga körfur undir lok annars leikhluta og gengu liðin til hálfleiks í stöðunni 58-33. Nate Brown gerði 15 stig fyrir Snæfell í fyrri hálfleik en þurfti að vinna hressilega fyrir þeim.

Landsliðsmiðherjinn Friðrik Stefánsson opnaði seinni hálfleik á þriggja stiga körfu og staðan því 61-33 Njarðvík í vil og yfirburðirnir algerir. Jón Ó. Jónsson tók smá rispu fyrir Snæfell í leikhlutanum en hann gerði 18 stig í leiknum. Lokatölur þriðja leikhluta voru 71-50 og sigurinn allt að því gulltryggður.

Friðrik Stefánsson varð frá að víkja snemma í fjórða leikhluta með sína fimmtu villu en það fékk ekki á Njarðvíkinga sem kláruðu leikinn 103-78. Örvar Kristjánsson átti fína innkomu í liði Njarðvíkur en hann gerði 11 stig í leiknum. 

Nate Brown lauk leik með 24 stig fyrir Snæfell en eins og áður segir gerði Brenton 29 fyrir Njarðvík, Jeb Ivey 24 og Friðrik Stefánsson 16. Njarðvíkingar léku án fyrirliða síns Halldórs Karlssonar í kvöld.

„Þetta gekk vel, sérstaklega í fyrri hálfleik, seinni hálfleikurinn var ekki nægilega góður hjá okkur. Vörnin small saman og við héldum Snæfell undir 80 stigum, það var markmiðið. Við erum með sterkasta varnarliðið og ef við höldum andstæðingunum undir 80 stigum þá vinnum við leikina,“ sagði Guðmundur Jónsson, leikmaður Njarðvíkinga, í samtali við Víkurfréttir eftir leikinn.

Tölfræði leiksins

VF-myndir/ JBÓ

 

 

 

 

 

 

 

 



Bílakjarninn
Bílakjarninn