Branislav mættur til landsins
Knattspyrnumaðurinn Branislav Milicevic, leikmaður Keflavíkur, kom til landsins í gær en nokkurn tíma hefur tekið að fá landvistarleyfi fyrir leikmanninn vegna anna og álags hjá Útlendingastofnun og Vinnumálastofu. www.keflavik.is greinir frá.
Leikmannahópur knattspyrnuliðs Keflavíkur er að fá á sig endanlega mynd um þessar mundir en Buddy Farah er væntanlegur um mánaðamótin mars – apríl. Geoff Miles kemur svo til reynslu hjá Keflavík í lok vikunnar en hann er Bandaríkjamaður og lék með Haukum í 1. deildinni á s.l. leiktíð.
www.keflavik.is
VF-mynd/ Branislav í baráttunni gegn Óskari Erni á síðustu leiktíð