Bygg
Bygg

Íþróttir

Botnbarátta í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 5. janúar 2017 kl. 11:00

Botnbarátta í Reykjanesbæ

Körfuboltinn rúllar í kvöld eftir jólafrí með grannaslag

Körfuboltaárið hefst með látum í kvöld þegar grannarnir í Reykjanesbæ mætast fallbaráttuslag í Domino’s deild karla. Það er sennilega ekki oft sem Njarðvík og Keflavík mætast í botnbaráttu líkt og nú, en sú verður raunin í þessum leik þar sem Keflvíkingar sitja í 8. sæti og Njarðvíkingar í því 11. Tveimur stigum munar á liðunum og er því um gríðarlega mikilvægan leik að ræða.

Keflvíkingar unnu síðustu tvær viðureignir - í fyrsta deildarleik tímabilsins 82:88 og svo í bikarkeppninni 97:91 í nóvember. Njarðvíkingar munu frumsýna Bandaríkjamanninn Myron Dempsey sem þeir fengu til liðs við sig í desember.

Grindvíkingar fara til Þorlákshafnar á morgun föstudag og kljást við Þórsara en þar fara liðin í 4. og 5. sæti sem ætla sér örugglega í toppbaráttuna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn