Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Bogi Rafn aftur til Grindavíkur
Mánudagur 4. apríl 2011 kl. 10:16

Bogi Rafn aftur til Grindavíkur

Grindvíkingurinn Bogi Rafn Einarsson hefur skipt aftur yfir í Grindavík eftir að hafa leikið með Njarðvík á síðustu leiktíð. Þessu greinir umfg.is frá. Bogi er öflugur varnarmaður og hefur hann verið í Bandaríkunum undanfarin tvö ár í námi en er nú kominn heim. 

Þá hefur Grindavík fengið markmann frá Englandi, Jack Giddens að nafni en hann er 19 ára. Jack var síðast á mála hjá Leyton Orient og er því einnig gjaldgengur í 2. flokki. Hann kemur í stað Rúnars Dórs Daníelssnar sem fór í Víði. Markvörður 2. flokks, Benóný Þórhallsson, er meiddur og verður ekkert með í sumar og því var brugðið á þetta ráð.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024