Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Blue Lagoon hádegisbrunch til styrktar og heiðurs
 Íþróttasambandi Fatlaðra
Miðvikudagur 23. október 2013 kl. 15:33

Blue Lagoon hádegisbrunch til styrktar og heiðurs
 Íþróttasambandi Fatlaðra

Hádegisbrunch að hætti matreiðslumeistara Bláa Lónsins verður í boði  laugardaginn 26. október kl. 12.00  í Bláa Lóninu.

Öll innkoma vegna viðburðarins rennur til Íþróttasambands fatlaðra. Verð er 3.900 krónur fyrir fullorðna, 1.950 krónur fyrir 7-12 ára börn. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Boðskort í Bláa Lónið er innifalið í verði fyrir þá sem bóka fyrir kl. 16.00 föstudaginn 25. október.

Ylja, ein vinsælasta hljómsveit landsins, mun koma fram.

Árangur íþróttamanna Íþróttasambands Fatlaðra hefur vakið mikla athygli og eru margir þeirra í fremstu röð.

Bláa Lónið og Íþróttasamband Fatlaðra gerðu með sér samstarfssamning á sl. ári Samningurinn er til fjögurra ára og gildir fram yfir Ólympíumót Fatlaðra í Ríó 2016.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024