Bláa Lóns þrautin 2005
Bláa Lóns þrautin á fjallahjóli verður haldin sunnudaginn 12. júní og verður boðið upp á 60 og 70 km vegalengdir.
Bláa Lóns þrautin, sem er skipulögð af Hjólreiðafélagi Reykjavíkur (HFR) í samvinnu við Bláa Lónið og Hafnarfjarðarbæ, er fjölmennasta hjólakeppnin fyrir fullorðna sem haldin er hér á landi. Þrautin hefst við íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði kl. 10.00 og hjólar þá hópurinn saman í lögreglufylgd til kirkjugarðsins þar sem tímataka hefst. Þrautin er 60 km og hjólað verður svokallaða Djúpavatnsleið í gegnum Vigdísarvelli og Grindavík og endað í Bláa Lóninu - heilsulind þar sem þátttakendum verður boðið í heilsulindina. Leiðin er að hluta á bundnu slitlagi og er ekki mjög torfær. Boðið verður upp á erfiðan 10 km krók bak við Helgafell fyrir þá allra hörðustu.
Þrautin er opin öllum hjólreiðamönnum 16 ára og eldri. Í karlaflokki verður keppt í flokkum 16-18 ára, 19-33 ára og 34 og eldri. Í kvennaflokki verður keppt í flokkum 16-33 ára og 34 ára og eldri. Fyrstu keppendur koma í mark u.þ.b. 2 klst síðar en hingað til hefur þátttakendum tekist að ljúka keppninni á innan við 4 klst. Einnig verður boðið upp á liðakeppni í 60 km vegalengd þar sem 3-5 keppendur eru í liði. Í liðakeppninni eru það þrír bestu tímarnir gilda en að minnsta kosti 3 liðsmenn verða að ljúka keppni. Tímatöku lýkur við markið kl. 14.45. Verðlaunaafhending mun fara fram í Bláa Lóninu - heilsulind og verða verðlaun veitt fyrir fyrsta sæti í hverjum flokki.
Skráning verður samdægurs á milli kl. 8.00 og 9.30 og er þátttökugjald kr. 2.500,- Einnig er hægt að bóka sig á heimasíðu HFR sem er www.hfr.is. Innifalið í skráningagjaldinu er bolur merktur keppninni, hjólabrúsi og aðgangur í Bláa Lónið - heilsulind. Flutningur til baka fyrir hjólin verður kl. 16.00 frá Bláa Lóninu - heilsulind. Hjólin verða flutt með sendibíl þátttakendum að kostnaðarlausu. Þeir sem kjósa að taka rútu til baka greiða kr. 1.000.- með Þingvallaleið. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu HFR sem er www.hfr.is.