Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Bláa Lónið veitir öllum íþróttafélögunum á Suðurnesjum styrki
Miðvikudagur 9. maí 2012 kl. 09:53

Bláa Lónið veitir öllum íþróttafélögunum á Suðurnesjum styrki



Bláa Lónið hefur veitt öllum íþróttafélögunum á Suðurnesjum styrki. Fulltrúar félaganna veittu styrkjunum móttöku þriðjudaginn 8. maí, í Bláa Lóninu.
Eftirfarandi greinar hlutu styrki: knattspyrna, körfuknattleikur, sund, fimleikar, badminton, júdó, skotfimi, lyftingar, taekwondo, hnefaleikar, þríþraut, akstursíþróttir, vélhjólaíþróttir, hestamennska og handbolti auk NES íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum.

Heildarvirði styrkjanna nú er rúmlega 6 milljónir króna en þeir eru í formi aðgangskorta í Bláa Lónið.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, sagði við þetta tækifæri að það væri bæði ánægjulegt og mikilvægt fyrir Bláa Lónið að koma með öflugum hætti að íþrótta- og æskulýðsstarfi á Suðurnesjum. „Við hjá Bláa Lóninu gerum okkur vel grein fyrir því mikilvæga og óeigingjarna starfi sem er unnið innan íþróttahreyfingarinnar. Alls veitum við um 30 styrki í dag og er það táknrænt fyrir fjölbreytt og öflugt íþróttastarf hér á Suðurnesjum. Suðurnesjafólk hefur einnig náð einstökum árangri og það er sérstaklega ánægjulegt að Grindvíkingar hafi orðið Íslands- og deildarmeistarar karla í körfuknattleik og Njarðvíkurstúlkur Íslands og bikarmeistarar í sömu grein. Auk þess sem Keflvíkingar urðu bikarmeistarar karla í körfuknattleik og keflavíkurkonur deildarmeistarar. Frábær árangur Heiðarskóla og Holtaskóla í Skólahreysti er einnig eftirtektarverður. Við óskum þessum aðilum og öllum þeim sem koma að íþrótta- og æskulýðsstarfi á Suðurnesjum til hamingju með frábæran árangur og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ sagði Grimur við þetta tækifæri.

VF-Mynd [email protected]: Hópurinn samankominn í gær

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024