Bláa Lónið og ÍF í samstarf fram yfir Ólympíumótið í Ríó
Íþróttasamband fatlaðra og Bláa Lónið hf hafa gert með sér samstarfs- og styrktarsamning. Með samningnum er Bláa Lónið hf orðið einn af helstu samstarfsaðilum Íþróttasambands fatlaðra.
Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF og Grímur Sæmundsen, forstjóri, Bláa Lónsins undirrituðu samning þessa efnis fyrr í vikunni.
Sveinn Áki sagði við þetta tilefni að afar ánægjulegt væri að gangast á band með Bláa Lóninu því rétt eins og Íþróttasamband fatlaðra skaraði það fram úr í sinni grein. Grímur Sæmundsen sagði að samstarf Bláa Lónsins hf við Íþróttasamband fatlaðra væri afar ánægjulegt fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess. „Íþróttasamband fatlaðra vinnur ómetanlegt starf á sínu sviði og íþróttafólk þess hefur vakið athygli fyrir afburðaárangur. Þátttaka íþróttafólksins á Ólympíumóti fatlaðra er táknræn fyrir þetta mikla starf og góðan árangur,“ sagði Grímur.
Öflugir samstarfsaðilar skipta miklu máli fyrir starfsemi sambandsins. Þátttaka íþróttafólks sambandsins í Ólympíumótinu er einn af hápunktum þess starfs sem sambandið vinnur. Sú þátttaka væri ekki möguleg nema með traustum samstarfsaðilum.