Björn þjálfar kvennalið Grindavíkur
María Ben snýr aftur - lykilleikmenn semja
Björn Steinar Brynjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í körfuboltanum í Grindavík til næstu tveggja ára. Björn að stíga sín fyrstu skref sem aðalþjálfari meistaraflokks en hann var aðstoðarþjálfari hjá karlaliðinu í fyrra.
Eftir barneignaleyfi mun María Ben Erlingsdóttir snúa aftur til Grindavíkur og hefur hún gert tveggja ára samning við liðið.
Þær Ingibjörg Jakobsdóttir, Petrúnella Skúladóttir, Hrund Skúladóttir og Jeanne Sicat hafa einnig framlengt samninga sína við félagið. Þær skrifuðu allar undir tveggja ára framlengingu nema Petrúnella sem framlengdi um eitt ár. Þær Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Björg Einarsdóttir og Helga Einarsdóttir hafa ákveðið að róa á önnur mið.