Björg Ásta og Nína Ósk í landsliðinu gegn Noregi
Björg Ásta Þórðardóttir leikmaður kvennaliðs Keflavíkur í knattspyrnu verður í landsliðshópnum sem mætir Noregi í tveimur leikjum um laust sæti í Evrópukeppni kvennalandsliða. Leikið verður í Egilshöll þann 10. nóvember og í Osló 13. nóvember. Björg Ásta hefur leikið átta A-landsleiki en hún var lykilmaður í liði Keflavíkur sem sigraði 1. deildina í sumar.
Sandgerðismærin Nína Ósk Kristinsdóttir er einnig í hópnum en hún leikur eins og kunnugt er með Íslandsmeisturum Vals og á hún fjóra A-landsleiki að baki.
VF-mynd/ úr safni