Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Mánudagur 28. október 2002 kl. 13:52

Bjóða afslætti á körfuboltaleiki í Reykjanesbæ

Körfuknattleiksdeildir UMFN og Keflavíkur hafa tekið upp samstarf með nýtt afsláttarkerfi á heimaleiki félaganna í Intersportdeildinni í vetur. Með hverju keyptum miða á leiki félaganna fylgir afsláttarmiði sem gegn framvísun á næsta leik hvors liðs í Intersportdeildinni gefur 200kr. aflslátt af fullorðinsmiða og 100kr. af barnamiða.Einnig munu stúku og ársmiðar deildanna gilda á báðum stöðum þannig að kortahafi í Keflavík getur fengið frítt inn á heimaleik Njarðvíkur gegn framvísun kortsins og kortahafi í Njarðvík fær á sama hátt frítt inn í Keflavík.

Stúku og ársmiðar gilda þó ekki á útivelli þegar þessi tvö lið eigast við.

Með körfuboltakveðju,
Stjórnir Kkd. Njarðvíkur og Keflavíkur
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024