Bjarni valinn íþróttamaður Sandgerðis

Bjarni sýndi mjög góðan árangur á árinu 2000. Hann varð í öðru sæti í meistaramóti G.S.G. og var kjörinn kylfingur ársins 2000 hjá klúbbnum. Bjarni var í sveit G.S.G. sem náði góðum árangri í 2. deild sveitakeppni G.S.Í. þar sem hann velgdi fyrrverandi og núverandi landsliðsmönnum undir uggum.
Annað íþróttafólk sem var tilnefnt til kjörs á Íþróttamanni ársins 2000 í Sandgerði og var af því tilefni heiðrað voru þau Magnús S. Sigurðsson körfuknattleiksdeild Ksf. Reynis, Nensý Þorsteinsdóttir sunddeild Ksf. Reynis og Ólafur Viggó Sigurðsson knattspyrnudeild Ksf. Reynis.
Mynd. Fv. Ólafur Þór, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Sandgerðis, Ólafur Viggó Sigurðsson knattspyrnudeild Ksf. Reynis, Nensý Þorsteinsdóttir sunddeild Ksf. Reynis, Bjarni S. Sigurðsson, kylfingur hjá Golfklúbbi Sandgerðis og Magnús S. Sigurðsson körfuknattleiksdeild Ksf. Reynis.