Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Miðvikudagur 19. júní 2002 kl. 21:10

Bjarki Gunnlaugs sá um Keflavík

ÍA sigraði Keflavík 5-2 í Símadeildinni í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Akranesi. Það voru bræðurnir Adolf og Hörður Sveinssynir sem skoruðu mörk Keflvíkinga. Grindavík tapaði gegn Fylki 0-2 og þóttu Grindvíkingar slakir í leiknum.Bjarki Gunnlaugsson, sem spilaði í kvöld sinn fyrsta leik með ÍA síðan 1994, skoraði tvö mörk fyrir heimamenn.
Keflavík og Grindavík eru því enn með 8 stig í deildinni og verða að taka sig verulega á ef þau ætla ekki að lenda í vandræðum þar sem deildin er jöfn og hörð og mun væntanlega vera það í allt sumar. Þetta var annar tapleikur liðanna í röð.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024