Birna Valgarðsdóttir er Íþróttamaður Keflavíkur 2004
Íþróttamaður Keflavíkur 2004 er Birna Valgarðsdóttir. Birna er vel að titlinum komin því hún er fyrirliði og einn af burðarásum meistaraliðs Keflavíkur í körfuknattleik. Þá er hún einn leikreyndasti leikmaður kvennalandsliðs Íslands frá upphafi. Hún var einnig útnefnd besti körfuknattleiksmaður Keflavíkur. Birna er stödd erlendis með körfuknattleikslandsliðinu um þessar mundir og tók unnusti hennar því við viðurkenningunum.
Stefán Gíslason var valin knattspyrnumaður Keflavíkur fyrir vaska frammistöðu á sparkvöllunum í sumar og var hann lykilmaður í bikarmeistaraliði Keflvíkinga. Þá var hann valinn í lið ársins og var í landsliðshópi Íslands.
Hin 13 ára Selma Ólafsdóttir er fimleikakona Keflavíkur 2004. Hún þykir með efnilegri fimleikastúlkum og vann til fjölmargra verðlauna á árinu, enda æfir hún mikið og er til mikillar fyrirmyndar.
Sundkona Keflavíkur er Íris Edda Heimisdóttir, sem hefur fyrir löngu markað sér sess sem ein fremsta sundkona landsins. Hún tók þátt í Ólympíuleikunum í Aþenu, en það voru aðrir Ólympíuleikarnir á hennar ferli.
Guðjón Björnsson er badmintonmaður Keflavíkur 2004. Hann þykir afar efnilegur í sinni
íþrótt og stóð sig vel á mótum ársins. Á hann því framtíðina fyrir sér.
Guðni Pálsson er skotmaður ársins, en hann sýndi góð tilþrif á árinu sem er að líða.
Að lokum var Helgi Rafn Guðmundsson valinn Taekwondo maður ársins en hann vann til fjölda verðlauna hér heima sem og erlendis á árinu. Hann varð m.a. Íslandsmeistari í sínum flokki og fékk silfur á Norðurlandamótinu í janúar sl.
Eftirfarandi er umsögn af vefsíðu Keflavíkur:
Birna Valgarðsdóttir er fyrirliði körfuboltaliðs kvenna í Keflavík. Birna er fædd á Sauðárkróki þann 19. janúar árið 1976 og er því 28 ára. Hún lék fyrst með Keflavík 1996 og hefur leikið hér í átta ár. Birna hefur átt mikilli velgengni að fagna með Keflavík, en hún hefur orðið fjórum sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum Bikarmeistari frá því hún kom til félagsins. Á þessum tíma hefur Birna leikið tæplega 250 leiki og skorað um 3 þúsund stig.
Á líðandi ári hefur Birna leikið frábærlega og betur en nokkru sinni fyrr. Hún var í lykilhlutverki kvennaliðsins í vor sem varð Íslandsmeistari með meiri yfirburðum en áður hafa þekkst og vann þar að auki alla aðra titla sem í boði voru.
Í sumar náði Birna þeim glæsilega árangri að verða aðeins þriðja konan á landinu sem leikur 50 landsleiki. Hún hefur nú leikið 57 slíka og mun jafna met Önnu Maríu Sveinsdóttur nú milli jóla og nýjárs, en það eru 60 leikir. Sem stendur er Birna á Englandi í keppnisferðalagi með landsliðinu. Birna er einn af burðarásum landsliðsins og var hún til dæmis stigahæst í sumar þegar liðið náði sigri á Promotion Cup, skoraði um 16 stig að meðaltali í leik.
Það sem af er leiktíðinni með Keflavík í vetur hefur Birna leikið einstaklega vel í frábærri liðsheild, meðal annars skorað yfir 17 stig á leik. Liðið er enn taplaust og hefur haft mikla yfirburði til þessa, er langefst í fyrstu deildinni, varð Meistari meistaranna í haust og síðan Hópbílameistari fyrir skömmu.
Birna hefur ávallt lagt sig fram í íþrótt sinni, hún æfir mikið og sýnir mikinn metnað. Hún er ávallt í sérlega góðu formi og leikur jafn vel í vörn og sókn Hún getur skorað grimmt, bæði með langskotum og gegnumbrotum, en á sama tíma getur hún tekið besta mann andstæðinganna úr umferð. Birnu hefur stöðugt farið fram á undanförnum árum og hefur aldrei leikið betur eða náð betri árangri en einmitt árið 2004.
VF-myndir/Þorgils Jónsson, Hópmynd: Þeir verðlaunahafar sem voru viðstaddir stilltu sér upp að lokinni athöfninni ásamt aðstandendum tveggja sem voru fjarverandi.