Birna og Svava í úrvalsliði fyrri umferðar
Í hádeginu í dag var tilkynnt um úrvalslið fyrri umferða Iceland Express-deilda karla og kvenna. Þau Jakob Örn Sigurðarson, leikmaður KR, og Kristrún Sigurjónsdóttir, leikmaður Hauka, voru valin bestu leikmenn fyrri hlutans en lið þeirra sitja á toppi Iceland Express-deildar karla og kvenna. Þá voru valin úrvalslið í karla og kvennaflokki. Tvær Keflavíkurstúlkur, þær Birna Valgarðsdóttir og Svava Ósk Stefánsdóttir, voru valdar í úrvalslið kvenna og Keflvíkingurinn Sigurður Þorsteinsson var valinní úrvalslið karla. Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson er í úrvalsliði karla.
Hér fyrir neðan má sjá valið hjá KKÍ í dag:
Úrvalslið Iceland Express-deildar karla:
Jakob Örn Sigurðarson KR
Cedric Isom Þór Akureyri
Jón Arnór Stefánsson KR
Páll Axel Vilbergsson UMFG
Sigurður Þorsteinsson Keflavík
Besti þjálfarinn: Einar Jóhannsson Breiðablik
Dugnaðarforkurinn: Ísak Einarsson Tindastóll
Besti leikmaðurinn - Jakob Örn Sigurðarson KR
Úrvalslið Iceland Express-deildar kvenna:
Slavica Dimovska Haukar
Kristrún Sigurjónsdóttir Haukar
Birna Valgarðsdóttir Keflavík
Svava Ósk Stefánsdóttir Keflavík
Signý Hermannsdóttir Valur
Besti þjálfarinn: Ari Gunnarsson Hamar
Dugnaðarforkurinn: Fanney L. Guðmundsdóttir Hamar
Besti leikmaðurinn - Kristrún Sigurjónsdóttir Haukar
Besti dómari Iceland Express-deildar karla og kvenna: Sigmundur Már Herbertsson
Myndir/Karfan.is: Efri myndin er af úrvalsliði kvenna og sú neðri af úrvalsliði karla.