Bikarmeistararnir til Spánar
Bikarmeistarar Keflavíkur í knattspyrnu héldu í dag til Spánar þar sem liðið mun dvelja næstu vikuna við æfingar og keppni. Liðið hefur lokið leikjum sínum í Lengjubikarnum og nú er lokaspretturinn á undirbúningstímabilinu í fótboltanum framundan enda hefst keppni í Landsbankadeildinni snemma í maí.
Keflvíkingar fara á sama stað á Spáni og þeir gerðu í fyrra en sá staður heitir Canela og þykja aðstæður þar vera til fyrirmyndar.