Bikarleikir á Suðurnesjum í kvöld
Þrír leikir verða í VISA-bikar karla í knattspyrnu á Suðurnesjum í kvöld.
Grindavík tekur á móti Hetti á Grindavíkurvelli, Reynir fær Sindra í heimsókn á Sparisjóðsvöllinn og á Garðsvelli mætast Suðurnesjaliðin Víðir og Þróttur frá Vogum.
Leikirnir hefjast allir kl. 19.15, en þess má einnig geta að á morgun tekur Keflavík á móti Stjörnunni á Sparisjóðsvellinum í Keflavík. Sá leikur hefst einnig kl. 19.15.