Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Bikarkeppnin í sundi næstu helgi í Vatnaveröld
Miðvikudagur 26. maí 2010 kl. 10:38

Bikarkeppnin í sundi næstu helgi í Vatnaveröld


Um  næstu  helgi mun Bikarkeppni SSÍ fara fram í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. Keppt verður bæði í fyrstu og annarri deild á föstudegi og laugardegi.

Í fyrstu deild eru sex lið skráð til keppni en það eru KR, SH, Ægir, ÍRB, ÍA
og  Óðinn. Í  annarri  deild keppa, Ægir B, Ármann, Breiðablik, Vestri og  Fjölnir.
Allt  útlit  er  því  fyrir  harða  baráttu á mótinu og spennandi verður að fylgjast  með gangi  mála.  Því  miður  getur lið ÍRB ekki telft fram sínu sterkasta  liði,  en þrátt fyrir það er stefnan sett hátt.

Lið  af  Suðurnesjunum  hafa  eingöngu  unnið Bikarkeppnina í 1. deild fimm sinnum  frá upphafi. Keppnin hefur alltaf verið með því sniði að stig karla og  kvenna  hafa  verið  lögð saman i keppni um Bikarmeistaratitilinn. Árið 2008  þá var þessari keppni síðan skipt upp í sérstaka Bikarkeppni karla og Bikarkeppni  kvenna.  Lið  ÍRB  var  fyrst  lið  til að vinna bæði karla og kvennadeildina eftir að því fyrirkomulagi var komið á.

Bikarmeistaratitlar í sundi á Suðurnesjunum frá upphafi.

1991 lið SFS

2002 lið ÍRB

2003 lið ÍRB

2008 lið ÍRB bikarmeistarar karla og kvenna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024