Bikarkeppni SSÍ 2008 verður í Vatnaveröld
Stjórn Sundsambands Íslands hefur samþykkt umsókn sunddeilda Keflavíkur og Njarðvíkur, ÍRB, um að halda Bikarkeppni SSÍ árið 2008. Þetta verður því annað árið í röð sem Bikarkeppnin verður haldin í Vatnaveröld.
Ákvörðunin er annars vegar byggð á því hversu vel tókst til með Bikarkeppnina í ár og hins vegar á því viðhorfi að Bikarkeppnina skuli halda í 50 metra laug. Mótið fer fram dagana 4.-6. júlí 2008.