Bikarkeppni KKÍ: Keflavík mætir Snæfelli
Í dag var dregið í 32-liða úrslitum Bikarkeppni karla í körfuknattleik. Keflavík og Snæfell munu eigast við í stórleik umferðarinnar, en hin toppliðin af Suðurnesjum fá auðveldari mótherja.
Þá var einnig dregið í 16-liða úrslitum kvenna og þar mætast Keflavík og Keflavík B, Njarðvík og KR og Grindavík mætir Ármanni/Þrótti.
Annars var drátturinn í karlaflokki sem hér segir:
Valur - UMFG
KR b -Valur b
KR - Hamar/Selfoss
HHF - Ármann/Þróttur
Ljónin - Dalvík
Leiknir - Breiðablik
Höttur - ÍA
Drangur - Haukar
Keflavík b - Stjarnan
Reynir S - Tindastóll
Þór Þ - Fjölnir
Skallagrímur - ÍR
ÍS - UMFN
Keflavík - Snæfell
Þróttur V - KFÍ
Breiðablik b - Þór Ak.
Karlaleikirnir fara fram helgina 27-28 nóvember og kvennaleikirnir 11.-12. desember.
Mynd/kki.is: Frá drættinum í dag