Bikarinn: Vörn og barátta munu skila sigri
Sérfræðingar spá í spilin fyrir bikarúrslitin í körfunni
Grindavíkurkonur munu halda uppi heiðri Suðurnesja um komandi helgi þegar úrslit bikarkeppninnar í körfubolta fara fram. Ríkjandi meistarar Grindavíkur mæta þar Íslandsmeisturum Snæfells í hörku rimmu. Þrisvar hafa liðin mæst í vetur og þrisvar hafa Snæfellskonur haft sigur. Fyrsti leikur liðanna í vetur endaði með 60:83 sigri Snæfellinga. Næsta leik unnu Snæfellingar með 16 stigum í Hólminum. Í þriðju viðureign liðanna unnu Snæfellskonur aftur, en nú með sex stigum. Við fengum nokkra spekinga til þess að spá í spilin fyrir stórleik helgarinnar sem fram fer á laugardag kl. 14:00.
Þurfa að stoppa systurnar og Bryndísi
Þorleifur Ólafsson leikmaður Grindavíkur:
„Ég held að Grindavík vinni 69:60. Til þess tel ég að Grindavík þurfi að stoppa systurnar í Snæfell og Bryndísi Guðmunds. Ég tel mikilvægt að byrja leikinn vel og hef ég fulla trú á að Grindavík nái því.
Úrslit leiksins munu ráðast á þessu gamla góða, baráttu, vilja og góðum varnarleik. Petrúnella og Sigrún munu fara fyrir liði Grindavíkinga og ég vona að Jan eigi eftir að vekja athygli.“
Sigurkarfa frá Skúladætrum
Ólöf Helga Pálsdóttir fyrrum leikmaður Grindavík:
„Ég spái því að leikurinn fari 65-62 Grindvíkingum í vil. Þetta verður sennilega svona jójó leikur þar sem liðin skiptast á að vera yfir, en ég er að vona að hann verði í járnum allan tíman. Snæfell á jafnvel eftir að komast aðeins framúr um miðbik leiksins en Grindvíkingar munu þá spýta í lófana og klára leikinn helst á þriggja stiga „buzzer“ frá annaðhvort Petrúnellu eða Hrund Skúladætrum.
Vörnin mun ráða úrslitum og verða Grindvíkingar að leggja áherslu á að stoppa Haiden Palmer sem er frábær leikmaður sem hjálpar við að gera gott Snæfellslið betra. Snæfell er líka stemmningslið sem gefst aldrei upp, þannig að Grindavíkurstúlkur verða að mæta þeim þar líka. Ég hugsa að Whitney Frazier eigi eftir að eiga frábæran leik, ég er með hana á Snapchat og hún virðist vera að undirbúa sig vel fyrir leikinn. Þetta mun sennilega verða hennar besti leikur í vetur hingað til.“