Bikarinn: Grindavík og Njarðvík mætast
Einn úrvalsdeildarslagur karlamegin
Dregið var í 16 liða úrslitum Poweradebikars karla og kvenna í körfuboltanum í dag. Nokkrar áhugaverðar rimmur fara fram, en grannaslagur er hjá konunum þar sem Grindvíkingar fá Njarðvíkinga í heimsókn. Keflvíkingar taka svo á móti Þórsurum kvennamegin.
Hjá körlunum ber hæst rimma Grindvíkinga og Stjörnunnar. Annar grannalagur verður háður í Sandgerði þar sem heimamenn fá Njarðvík-b í heimsókn. Njarðvíkingar fara svo til Hvergerðis og Keflvíkingar taka á móti Valsmönnum.
16 liða úrslit kvenna:
Fjölnir-Haukar
Keflavík - Þór Akureyri
Snæfell - Breiðablik
KR - Skallagrímur
Grindavík - Njarðvík
Sitja hjá og fara beint í 8-liða úrslit
Hamar
Valur
Stjarnan
16 liða úrslit karla:
Höttur - Þór Þorlákshöfn
Hamar - Njarðvík
Haukar b - KR
Haukar - Ármann
Grindavík - Stjarnan
Reynir Sandgerði - Njarðvík b
Keflavík - Valur
Breiðablik - Skallagrímur