Bikarinn: Grannaslagur í kvennaboltanum
Dregið var í undanúrslit Lýsingarbikars karla og kvenna í körfuknattleik í dag. Sannkallaður grannaslagur verður í kvennaflokki þegar Grindavík tekur á móti Keflavík í Röstinni og Haukar mæta síðan Fjölni í hinum undanúrslitaleiknum.
Í karlaflokki mætast Njarðvík og Snæfell í Ljónagryfjunni og Skallagrímur fékk heimaleik gegn Fjölni.
Annars var bikardrátturinn eftirfarandi:
Konur:
Grindavík-Keflavík
Haukar-Fjölnir
Karlar:
Njarðvík-Snæfell
Skallagrímur-Fjölnir
Undanúrslitaleikinir fara fram helgina 2.-3. febrúar