Bikarfjör í kvöld
8-liða úrslit Bikarkeppni KKÍ í karlaflokki fara fram í kvöld. Grindvíkingar, sem eru efstir í Intersport-deildinni, taka þá á móti 1. deildar liði Fjölnis og er raunhæft að spá heimamönnum öruggum sigri í Röstinni. En ekkert er fyrirfram gefið í íþróttunum, eins og svo oft hefur komið fram og Grindvíkingar þurfa að spila af hörku til að komast áfram í keppninni. Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, játar því að hans menn séu vissulega sigurstranglegri fyrir leikinn en varar við öllu vanmati. „Við verðum að gíra okkur upp fyrir þennan leik og taka hann alvarlega, því Fjölnisliðið er vel mannað og hefur verið að spila vel í 1. deildinni.“
HAUKAR-KEFLAVÍK
Keflvíkingar hafa spilað misjafnlega í deildinni í vetur, en hafa endrum og sinnum minnt rækilega á sig. Í bikarkeppninni fá menn ekki nema eitt tækifæri sem þeir þurfa að nýta og Keflavíkingar eru fullkomlega meðvitaðir um það samkvæmt Fali Harðarsyni, öðrum þjálfara liðsins. „Við ætlum okkur að sækja sigur og ekkert annað í þennan leik. Menn voru ekki sáttir eftir tapið í síðasta leik og munu mæta tilbúnir í hörkuleik.“
NJARÐVÍK-HAMAR
Njarðvíkingar eiga harma að hefna gegn Hamarsmönnum sem höfðu sigur í fyrri leik liðanna í vetur. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkur, segir ekkert koma til greina annað en að komast áfram í keppninni. „Þetta er spurning um hugarfar. Við þurfum bara að mæta ákveðnir til leiks og spila okkar bolta. Þá eigum við að vinna leikinn.“
Bikarkeppni kvenna
HAUKAR-NJARÐVÍK
Þrátt fyrir að Haukastúlkur séu í 2. deildinni en Njarðvík í þeirri fyrstu, gæti þessi bikarleikur, sem fer fram í kvöld, orðið tvísýnn. Haukastúlkur hafa farið mikinn í 2. deildinni og hafa þar fáheyrða yfirburði. Þær hafa unnið alla sína leiki og má þakka það frammistöðu Helenu Sverrisdóttur, hinni 15 ára landsliðskonu Hauka, sem hefur, þrátt fyrir ungan aldur, sannað sig sem ein allra fremsta körfuknattleikskona landsins og gæti hæglega velgt Njarðvíkingum undir uggum í leiknum.
ÞÓR AK. -KEFLAVÍK
Á laugardaginn sækja meistarar Keflavíkinga Þór frá Akureyri heim í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna, en Þór er um þessar mundir um miðja 2. deildina. Með fullri virðingu fyrir heimastúlkum er nánast fullvíst að Keflvíkingar sæki sigurinn og fari áfram í undanúrslit. Munurinn á liðunum er afskaplega mikill og verður leikurinn því að teljast formsatriði fyrir meistarana.