Bikarblús hjá Suðurnesjakonum
Bæði Grindavík og Keflavík máttu þola stór töp í Borgunarbikar kvenna í fótbolta um helgina. Grindvíkingar fóru alla leið norður á Akureyri þar sem úrvalsdeildarlið Þór/KA var mótherjinn. Grindvíkingar sáu aldrei til sólar og töpuðu 6-0, en staðan var þegar orðin 5-0 í hálfleik.
Keflvíkingar fengu Breiðablik í heimsókn, en Blikar eru í öðru sæti úrvalsdeildar eins og stendur og eru núverandi Íslandsmeistarar. Þar var sömu sögu að segja og fyrir norðan. Kópavogskonur unnu öruggan 0-5 sigur þrátt fyrir góða baráttu Keflvíkinga.