Bið Keflvíkinga á enda – leikið á nýja vellinum á sunnudaginn
Lið Keflavíkur og FH mætast í Pepsi-deild karla á sunnudaginn kl. 19:15. Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og er þetta fyrsti leikurinn þar eftir gagngerar endurbætur á vellinum. Sem kunnugt er hafa Keflvíkingar leikið á Njarðtaksvellinum í sumar.
Keflavíkurvöllur var vígður í byrjun júlí árið 1967. Hann þótti bylting fyrir knattspyrnumenn í Keflavík á þessum tíma. Rúmlega 40 árum síðar var völlurinn orðinn barns síns tíma og segja má að endurbæturnar sem gerðar hafa verið á vellinum í dag séu einnig byltingarkenndar.
Síðasta leik þessara liða lauk með sigri FH á dögunum þegar þeir slógu Keflvíkinga út úr bikarkeppninni. Á sunnudaginn kemur í ljós hvort Keflvíkingum tekst að hefna ófaranna á nýjum velli.